Innra mat á skólastarfi í Hólabrekkuskóla
Lögð er áhersla á að allir starfsstaðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar vinni markvisst innra mat sem er óaðskiljanlegur hluti af skóla- og frístundastarfi. Í því flest fagleg ígrundun og greining á gögnum til að meta gæði skólastarfs og hvort að tilætlaður árangur hafi náðst út frá fyrir fram ákveðnum viðmiðum.
Innra mat Hólabrekkuskóla
Innra mat skólans er liður í lögbundinni skyldu hans til að tryggja markvissa og kerfisbundna þróun skólastarfsins. Markmið innra mats er að afla áreiðanlegra gagna um starfshætti, árangur og líðan, greina skyldleika og tækifæri til umbóta og leggja grundvöll að markvissri umbótaáætlun. Fagmennskuteymi Hólabrekkuskóla stýrir vinnu við innra mat innan skólans.