Opið fyrir umsóknir í tónlistarskóla og skólahljómsveitir

Tónlistarskólar og skólahljómsveitir

Opið fyrir umsóknir í tónlistarskóla og skólahljómsveitir - Applications Open for Music Schools and
School Concert Bands - Otwarte zapisy do szkół muzycznych i szkolnych orkiestr 

Tónlistarskólar og skólahljómsveitir

Bréf til foreldra

Fjölbreytt tónlistarnám stendur börnum og unglingum í Reykjavík til boða í fjórum borgarreknum skólahljómsveitum og í tónlistarskólum sem Reykjavíkurborg er með þjónustusamninga við.
Nánari upplýsingar um tónlistarnám í borginni - Tónlistarnám
Opið er fyrir umsóknir í tónlistarskólana og opnað verður fyrir umsóknir ískólahljómsveitir mánudaginn 14. apríl kl. 9:00.
 

Umsóknir í tónlistarskóla:
Tónlistarskólar í Reykjavík bjóða upp á fjölbreytt nám á mörg hljóðfæri, auk söngnáms. Flestir skólanna bjóða upp á úrval hljóðfæra, en sumir sérhæfa sig í
söng eða ákveðnum hljóðfærum.
 

Sótt er um nám í tónlistarskólum í gegnum vefsíðu hvers skóla fyrir sig. Hver skóli hefur sína gjaldskrá, en hægt er að nýta frístundakortið upp í námsgjöld. Nemendur sem þegar stunda nám í tónlistar- eða söngskóla þurfa að endurnýja umsókn sína í samráði við sinn skóla.
 

Hér má finna lista yfir tónlistarskóla sem njóta styrkja frá Reykjavíkurborg: Tónlistarskólar í Reykjavík.
Fyrir nánari upplýsingar um fyrirkomulag umsókna er rétt að hafa samband við viðkomandi tónlistarskóla.

Umsóknir í skólahljómsveitir:
Í skólahljómsveitum Reykjavíkurborgar er boðið upp á nám á helstu málm- og tréblásturshljóðfærum, auk slagverks og rafbassa. Lögð er mikil áhersla á samspil og er gerð krafa um virka þátttöku í æfingum og tónleikahaldi. Nemendur fá jafnframt einkatíma þar sem þeir fá kennslu og þjálfun á sitt hljóðfæri.


Opnað verður fyrir umsóknir í skólahljómsveitirnar fjórar mánudaginn 14. apríl kl. 9:00 fyrir skólaárið 2026 – 2027.

Sækja þarf um rafrænt á SpeedAdmin sem er rafrænt skráningar- og upplýsingakerfi skólahljómsveitanna.
Inntaka í skólahljómsveitir byggir meðal annars á tímasetningu umsóknar og því hvort laust sé á því hljóðfæri sem sótt er um í hverfi barnsins. Í umsókn er hægt að skrá athugasemdir, til dæmis um fyrra tónlistarnám eða biðlista. Frekari upplýsingar um skólahljómsveitirnar – Skólahljómsveitir Reykjavíkur
 

Athygli er vakin á því að þau sem þegar hafa sótt um í skólahljómsveit þurfa að sækja um að nýju fyrir skólaárið 2026–2027.
 

Með kveðju frá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar