Verum klár í haust - Be smart / Be ready fall 2026

verumklar

Forvarnarmolar til foreldra síðsumars 2026

Verum klár í haust

Framundan eru síðustu bæjarhátíðir sumarsins, þar á meðal Menningarnótt. Þessar hátíðir eru fyrst og fremst fjölskylduhátíðir þar sem kynslóðir koma saman og njóta dagsins. Við hvetjum foreldra til að Vera klár og halda vel utan um börn sín og ungmenni. Mælt er með að fjölskyldan njóti hátíðarinnar saman og verði samferða heim að hátíð lokinni.

Teikn eru á lofti um aukna áfengis- og vímuefnaneyslu ungmenna, spennu og áhuga
ungmenna fyrir útiskemmtunum sveitarfélaga nú í sumarlok. 

Því viljum við vekja athygli á að: 

Árangur í forvarnarstarfi síðustu áratuga má meðal annars þakka samstöðu foreldra. Í því
skyni er mikilvægt að foreldrar tali saman, leyfi ekki eftirlitslaus samkvæmi og virði lög
um áfengi, vímuefni, nikótín notkun og útivistartíma. Það hefur sýnt sig að aðhald og
mörk í uppeldinu frá fæðingu barns eru afar mikilvæg. Rannsóknir hafa sýnt að verndandi þættir í lífi barna og unglinga eru m.a. samverustundir fjölskyldunnar, að foreldrar fylgist með hvað börn eru að gera, hvar þau eru og með hverjum, þekki vini barna sinna og foreldra þeirra.

Gott er að hafa í huga að virkni barna og ungmenna s.s. í skipulögðu frístundastarfi er stór verndandi þáttur fyrir ýmiskonar áhættuhegðun. Foreldrar eru m.a. hvattir til að ræða við börn og ungmenni um virðingu, umburðarlyndi, heilbrigð sambönd, samþykki og mörk. Það eykur félagsfærni. Þegar kemur að félags- og skemmtanalífi ungmenna gegna foreldrar lykilhlutverki sem fyrirmyndir og eftirlitsaðilar. Það á líka við um bæjarhátíðir og Menningarnótt og því mikilvægt að börn og ungmenni verði samferða foreldrum sínum heim.

Um forvarnarátakið Verum klár:

Forvarnarátaki Reykjavíkurborgar Verum klár er ætlað að vekja samfélagið til vitundar um þær áskoranir sem blasa við í forvarnarstarfi. 

Markmiðið er að ná til barna og ungmenna með jákvæðum og uppbyggilegum skilaboðum, en líka til foreldra og annarra sem gegna mikilvægu hlutverki í forvarnarstarfi. 

Verum klár á því sem skiptir sköpum fyrir velsæld barna og ungmenna.