Þemadagar 23. - 25. mars 2026
Þemadagar, skertur skóladagur, og foreldrasýning verður föstudaginn 27. mars kl. 08:30-09:40
Þemadagar og foreldrasýning
Dagana 23. - 25. mars 2026 eru þemadagar og í ár er þemað Astrid Lindgren. Nemendur vinna í hópum þvert á árganga og allir nemendur eru til kl. 13:40 í skólanum.
BREYTT - Kæru foreldrar,
Þar sem veðurspá morgundagsins er slæm frestum við foreldrasýningunni sem átti að vera í fyrramálið til föstudags.
Foreldrasýningin verður því föstudaginn 27. mars kl. 8:30 – 9:40.
Hlökkum til að sjá sem flesta á föstudaginn þar sem afrakstur þemadaga verður til sýnis um allan skólann.
FRESTAÐ Fimmtudaginn 26. mars kl. 8:30 - 9:40 er foreldrasýning og allir foreldrar hjartanlega velkomnir að koma og skoða afrakstur þemadaga. Fimmtudagur er skertur skóladagur samkvæmt skóladagatali og allir nemendur búnir kl.12:00. Nemendur í 1. - 4. bekk sem skráðir eru í frístund fá gæslu í skólanum til kl. 13.40.
Föstudagurinn 27. mars er hefðbundinn skóladagur og hann er einnig síðasti dagur fyrir páskaleyfi.