Gleðilegt sumar 2026
Við í Hólabrekkuskóla þökkum ánægjulegt samstarf á skólaárinu 2025-2026 og óskum öllum gleðilegs sumars.
Sumarkveðja og skólasetning ágúst 2026
Skrifstofa skólans er lokuð frá 18. júní - 10. ágúst 2026.
Skólasetning hjá nemendum í 2. - 10. bekk verður mánudaginn 24. ágúst. Kennsla verður samkvæmt stundatöflu.
Nemendur í 1. bekk verður boðið til samtals ásamt foreldrum sínum mánudaginn 10. ágúst og þriðjudaginn 11. ágúst, hringt verður í foreldra. Kennsla hjá nemendum í 1. bekk hefst miðvikudaginn 12. ágúst samkvæmt stundatöflu og frístund tekur til starfa sama dag.
Við óskum ykkur öllum gleðilegs sumars og munum eftir sumarlestri. Hlökkum til að sjá ykkur.